Á UT messunni þann 6. febrúar 2026 flutti ég erindi: Hvað höfum við gert 85 ára gamalli konu í stafvæðingunni? Óhætt er að segja að erindið og inntak þess hafi fangað mikla athygli. Fyrirlesturinn var afar vel sóttur en það var þéttsetið í Silfurbergi í Hörpu. Því miður er ekki til upptaka hjá Ský af fyrirlestrinum vegna tæknivandamála. Glærurnar eru til.
Auk þess var ég kallaður í viðtöl um efnið í fjölmiðlum, Síðdegisútvarpi Rásar 2, Reykjavík síðdegis á Bylgjunni og Morgunútvarpi Rásar 1. Jafnframt var ég í viðtali hjá Morgunblaðinu af þessu tilefni auk þess að vera í beinni útsendingu Advania frá ráðstefnunni. Fyrir mann sem er hreinræktaður introvert þá tekur svona athygli á. En ég er þakklátur fyrir að efnið, sem er brýnt, fékk svona mikla athygli.
Svona var erindið kynnt:
Eldri borgarar hafa margir hverjir ekki tileinkað sér eða náð tökum á stafrænni tækni. Í þessum fyrirlestri velti ég upp spurningum um hvort við höfum mögulega gengið of langt á of skömmum tíma? Er krafan um hagræði, hagnað og hagnýtingu tækninnar að láta okkur missa sjónar af sjálfsögðum réttindum eldra fólks til þjónustu, persónuverndar og sjálfstæðis? Ég gef innsýn í reynsluheim 85 ára gamallar móður minnar og margra annarra í svipaðri stöðu og velti fyrir mér hvernig við getum gert betur í þjónustu við aldraða og aðra í viðkvæmri stöðu.
UT messan: Myndir frá erindinu








Morgunblaðið, sérblað um UT messuna

Reykjavík síðdegis, 5. febrúar 2026

Síðdegisútvarpið á Rás 2, 5. febrúar 2026

Morgunvaktin á Rás 1, 6. febrúar 2026
