Um Fúnksjón

Stafræn ráðgjöf

Ef það er eitthvað sem ég er þekktur fyrir þá er það klára verkefni sem ég tek að mér. Komdu þessum vef loksins í loftið! Kláraðu þessa stefnu! Mældu árangurinn af stafrænum lausnum. Þannig færðu tiltrú á verkefnin.

Sigurjón í stuttu máli

Yfir 25 ára reynsla - Höfundur Bókarinnar um vefinn - Reyndur fyrirlesari - Stýri vinnustofum - Verkefnastjóri - Millistjórnandi ársins hjá Stjórnvísi 2022 - Stafrænn leiðtogi - Heiðursverðlaun SVEF 2025

Hér finnurðu mig

Fúnksjón slf.
Bjargargata 1 (Gróska),
2. hæð, 102 Reykjavík
[email protected]
664-5505

Um mig

Fúnksjón er stafræn ráðgjöf Sigurjóns Ólafssonar. Starfsemin hófst árið 2013. Árið 2019 hóf ég störf sem sviðsstjóri þjónustu og þróunar hjá Hafnarfjarðarbæ og Fúnksjón fór í ótímabundinn dvala en árið 2024 var ráðgjöfin endurvakin og að fullu starfrækt á ný í ársbyrjun 2025.

Á árum áður stýrði ég vefmálum hjá Íslandsbanka (2011-2013) og Kaupþingi (2001-2008), vann við samskipta- og vefmál hjá Háskóla Íslands (2008-2011), PricewaterhouseCoopers (2000-2001) og Siglingastofnun (1997-2000). Á árunum 2011-2019 kenndi ég vefmiðlun (aðjúnkt) við Háskóla Íslands og hef kennt í Endurmenntun HÍ, Vefskóla Tækniskólans og víðar.

Ég er með BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands, MA gráðu í alþjóðasamskiptum frá University of Amsterdam og stundaði nám í trúarbragðafræði við Háskóla Íslands.
Hjá Hafnarfjarðarbæ leiddi ég stafræna umbreytingu hjá þriðja stærsta sveitarfélagi landsins. Ég hef umtalsverða stjórnunarreynslu og gengið vel á því sviði. Hlotnaðist sá heiður að vera útnefndur millistjórnandi ársins árið 2022 hjá Stjórnvísi.

Árangur bæjarins hefur vakið athygli víða en að mörgu leyti hefur Hafnarfjarðarbær leitt stafrænar breytingar í sveitarfélögum. Lesa má um fjölda verkefna í svonefndum verkefnasögum á vef bæjarins.  Bærinn fékk nýsköpunarverðlaun hins opinbera 2025 fyrir leiðandi umbótastarf við stafræna umbreytingu í þjónustu og rekstri sveitarfélagsins.

Ég er með samning við Stafrænt Ísland um ráðgjöf varðandi stafvæðingu hins opinbera í framhaldi af útboði sem fór fram árið 2024.

Í mars 2026 hlaut ég heiðursverðlaun SVEF fyrir ómetanlegt framlag til vefmála.

ára reynsla

+

viðskiptavinir

%

ánægja viðskiptavina

+

verkefni lokið

Fjölbreytt flóra viðskiptavina

Viðskiptavinir Fúnksjón eru frá nánast öllum geirum íslensks atvinnulífs: Einkafyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög, félagasamtök, menntastofnanir o.fl. Dæmi um viðskiptavini má finna hér fyrir neðan.

Einkafyrirtæki og OHF: Almenni lífeyrissjóðurinn, EFLA, Bláa lónið, Eimskip, Hornsteinn, Icepharma, Landsnet, Landstólpi, Landsvirkjun, Miklaborg, RARIK, Saga Travel,  Síminn, Útfararstofa kirkjugarðanna.

Stofnanir: Alþingi, Árnastofnun, Dómstólasýslan, Embætti forseta Íslands, FME, Forsætisráðuneytið, Hæstiréttur, Landspítalinn, Náttúrufræðistofnun, Persónuvernd, Samgöngustofa, Stafrænt Ísland, Stjórnarráðið, Veðurstofa Íslands, Vegagerðin, Þjóðskjalasafn.
Menntastofnanir: Endurmenntun HÍ, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Háskólinn á Akureyri, Mímir, Símey

Félagasamtök: ASÍ, BSRB, FÍN, Kennarasamband Íslands, Ferðafélag Íslands

Sveitarfélög: Fjarðabyggð, Garðabær, Hafnarfjarðarbær, Ísafjarðarkaupstaður, Reykjavíkurborg, Seyðisfjarðarkaupstaður (Múlaþing), Samband íslenskra sveitarfélaga.

Nýleg vefverkefni sem ég hef komið að þarfagreiningu og verkefnastýrt er vefur Háskóla Íslands (2026), Mímir.is (2026), Forseti.is (2026), Gardabaer.is (2026), Endurmenntun.is (2026), FÍN.is (2025) og EFLA innri vefur (2025).

Nýttu öfluga tengslanetið mitt! Ég kem með sérfræðingana sem þig vantar, þekki lausnirnar og saman gerum við stóra hluti!