Heiðursverðlaun SVEF. Takk!

Höfundur
Dagsetning
26. mars 2026
Höfundur
Dagsetning
26. mars 2026

Á uppskeruhátíð Samtaka vefiðnaðarins (SVEF) 26. mars hlotnaðist mér mikil viðurkenning þegar ég fékk heiðursverðlaun SVEF fyrir ómetanlegt framlagt til vefmála. Í umsögn um verðlaunin sagði m.a.:

Framlag hans til vefmála, aðgengismála og stafrænna umbreytinga er gríðarlegt en frá árinu 1997 hefur hann komið að uppbyggingu og þróun veflausna hjá bæði opinberum stofnunum og stórum fyrirtækjum.

Það er óhætt að segja að mér þykir óskaplega vænt um þennan heiður frá kollegum mínum. Mér er ljóst að ég er orðinn nokkurs konar „afi“ í þessum geira enda vandfundnir einstaklingar sem hafa unnið við vefmál svo að segja frá upphafi vefþróunar á Íslandi. Á einn eðan annan hátt hef ég unnið við vefmál og stafræn verkefni allt frá árinu 1997 þegar ég tók við starfi útgáfustjóra hjá Siglingastofnun. Fyrsta snerting mín var þó árið 1996 eða fyrir 30 árum síðan þegar ég sótti námskeið hjá Endurmenntun í HTML sem Gunnar Grímsson, sá mikli frumkvöðull, kenndi. Þá starfaði ég hjá Húsnæðisstofnun ríkisins og fyrstu pælingar voru byrjaðar á að setja upp vef fyrir stofnunina.

Eftir tímann hjá Siglingastofnun (1997-2000) fór ég til PricewaterhouseCoopers (2000-2001) og starfaði þarf sem markaðsstjóri en hafði einnig umsjón með vefmálum. Tímamót á mínum ferli voru þegar ég hóf störf sem vefritstjóri og síðar vefstjóri Kaupþings (2001-2008) en það var í fyrsta sinn sem ég vann fullt starf í vefmálum. Síðar lá leiðin til Háskóla Íslands (2008-2011) þar sem ég vann að vef- og kynningarmálum auk þess að hefja feril minn við kennslu hjá Endurmenntun og Háskóla Íslands sem stundakennari og síðar aðjúnkt í vefmiðlun sem ég sinnti til ársins 2019. Íslandsbanki varð svo næsti vinnustaður (2011-2013) minn en þar gegndi ég stöðu deildarstjóra vefmála og netbanka. Ég lét svo draum rætast um að vinna sjálfstætt árið 2013 og hóf eigin rekstur með stofnun Fúnksjón vefráðgjafar auk þess að sinna kennslu við HÍ. Á þessum árum vann ég að skrifum og gaf út Bókina um vefinn árið 2015 í samstarfi við Hugsmiðjuna en ég kenndi einnig námskeið í Vefakademíu Hugsmiðjunnar. Ég hef kennt víðar námskeið meðal annars í vefskóla Tækniskólans. Eftir sex góð ár í ráðgjöf var ég ráðinn í starf sviðsstjóra þjónustu- og þróunarsviðs Hafnarfjarðarbæjar þar sem ég leiddi nýtt svið og stafræna umbretyingu í þjónustu bæjarins. Á þessum tíma fékk ég stjórnunarverðlaun Stjórnvísis árið 2022 auk þess sem mikill árangur náðist í stafrænni umbreytingu. Árið 2025 leitaði hugurinn að nýju í ráðgjöfina og Fúnksjón vaknaði úr dvala. Reyndar hafði ég gripið í ráðgjöfina 2024 þegar ég fékk launalaust leyfi í hálft ár frá Hafnarfjarðarbæ og bjó í Madrid með fjölskyldunni.

Þetta er langur ferill í vefmálum og stafrænum verkefnum í nær 30 ár. Mér finnst ég hafa lagt talsvert af mörkum og hef notið þess að starfa í þessum geira. Ég hef verið duglegur að breyta til á nokkurra ára fresti og endurnýjað sjálfan mig í leiðinni. Ég er með plön um hvað ég ætla mér að taka fyrir hendur á næstu árum en læt vera að upplýsa um þau að svo stöddu. 30 ár í viðbót í vefmálum er ekki í þeim plönum svo mikið get ég sagt!

Að lokum. Takk fyrir mig! Takk SVEF! Takk kollegar! Ég tek við þessum verðlaunum af mikilli auðmýkt.

Viltu deila þessari færslu?

Fleiri færslur