Hversu flókið er að skrifa fyrir vef eða skipuleggja efni á vefnum? Ekki svo flókið í rauninni. Nokkrar grundvallarreglur þarf að hafa í heiðri en fyrst og fremst snýst verkefnið um aga.
Ef þú ert vefstjóri í fyrirtæki þá er líklegt að þú fáir skilaboð í pósthólfið á hverjum degi með skilaboðum á borð við: „Vinsamlegast birtið eftirfarandi efni á vefnum”. Þetta efni getur verið texti, skýrsla, mynd, myndband eða blanda af þessu.
Hlýðnir og þjónustulundaðir vefstjórar grípa efnið og birta það undireins gagnrýnislaust og fá klapp á bakið. Skynsamur vefstjóri, en líka þjónustulundaður, spyr sig fyrst spurninga áður en setur efnið inn:
Ef hann getur ekki svarað neinni af þessum spurningum játandi þá svarar hann kurteislega til baka: „Því miður þá tel ég ekki að þetta efni eigi heima á vefnum”.
Líklega kemur upp einhver óánægja í byrjun með slík viðbrögð en með tímanum öðlast vefstjórinn virðingu. Allir sem skila efni á vefinn þurfa að þekkja vinnubrögðin og þá er líklegt að skilningurinn fáist með tímanum. Ert þú háseti eða skipstjóri á þínum vef?
Ef efnið á erindi á vefinn þá þarf að huga að ýmsu áður en það er gefið út.
Gæði efnis og málfar
Umbrot og útlit
Snurfus og útgáfa
Einmitt, getur svo einhver farið eftir þessu? Það þarf að gefa út textann ekki seinna en í gær. Þannig er veruleikinn hjá flestum vefstjórum.
Jú vissulega. Það getur verið ómögulegt að hlíta þessum reglum í hvívetna en gerðu þitt besta. Fljótt verða þessi vinnubrögð hluti af eðlilegu ferli. Það er enginn sómakær forritari eða hönnuður sem myndi sætta sig við vinnulag hlýðna vefstjórans.
Ef þú berð ekki virðingu fyrir efninu á vefnum, hver gerir það þá?