Fúnksjón er ráðgjöf Sigurjóns Ólafssonar. Ég aðstoða stofnanir, sveitarfélög, fyrirtæki og félög í stafrænni ráðgjöf, stafrænni umbreytingu og stefnumótun. 

Ég hef um 25 ára reynslu af stafænum verkefnum hjá hinu ríki, sveitarfélögum og einkafyrirtækjum, innlendum sem alþjóðlegum verkefnum, stórum sem smáum og allt þar á milli.

Fúnksjón hóf starfsemi 2013. Ráðgjöfin fór á bið þegar ég tók við starfi sviðsstjóra þjónustu- og þróunarsviðs hjá Hafnarfjarðarbæ en þar stýrði ég stafrænum umbreytingum með góðum árangri.

Á síðustu árum hef ég öðlast mikla innsýn og reynslu við að stýra stafrænum umbreytingum hjá einu af stærstu sveitarfélögum landsins. Þessi reynsla getur án vafa nýst öðrum sveitarfélögum, ríkisstofnunum og í reynd hvaða fyrirtæki sem er.

Ég er einn af ráðgjöfum sem eru með samning við Stafrænt Ísland um ráðgjöf við stafvæðingu hins opinbera.

Stafræn ráðgjöf

Tengslanetið er gulls ígildi

Fúnksjón er eins manns fyrirtæki en er með risa stórt tengslanet við aðra sérfræðinga og ráðgjafa á nánast öllum sviðum. Ég hef unnið með gríðarlega öflugu fólki með ólíka sérþekkingu. Í umfangsmeiri verkefnum get ég kallað á sérfræðinga sem ganga í verkefnin með mér og mínum viðskiptavinum. Þetta tengslanet er mikill styrkur fyrir mína viðskiptavina og mína ráðgjöf.

Verkefnastjórnun og stafræn umbreyting

Ein mestu verðmæti í því að fá Fúnksjón að verkefnum eru ekki síst fólgin í vissu um að verkefnin munu klárast. Reynsla mín af því að stýra stórum sem smáum stafrænum verkefnum er mikil og farsæl. Fáðu reynsluna með þér í lið í þinni stafrænni umbreytingu og sjáðu til þess að verkefnin þín klárist.

Sérfræðimat og vefrýni

Fáðu auga reynslunnar á vefinn eða stöðu stafrænna umbreytinga. Í hnitmiðaðri skýrslu færðu samantekt á því sem er vel gert, öðru sem má bæta og færð ráðleggingar um næstu skref.

Undirbúningur, skipulag og endurgerð vefja

Þegar ráðist er í smíði á nýjum vef eða endurskipulag á eldri vef skiptir undirbúningur höfuðmáli. Við þurfum að kynnast notendum vefsins, rýna í þarfir þeirra og fá sjónarmið hagsmunaaðila í fyrirtækinu. Það er t.d. gert með viðtölum, notendaprófunum, netkönnun, flokkunaræfingum og greiningu.

Stefnumótun og skipulag

Stafræn umbreyting krefst skýrrar stefnu. Það þarf að smíða skýra stefnu sem allir í fyrirtækinu skilja og fara eftir. Stefnan og aðgerðaáætlun í stafrænum málum þarf að vera í samræmi við heildarstefnu fyrirtækisins. Ég skipulegg vinnustofur og laða fram hugmyndir starfsfólks, viðskiptavina og annarra hagsmunaaðila.

Samkeppnisgreining

Hér færðu yfirlit um þjónustu og frammistöðu þeirra sem þú berð þig saman við. Sett fram á skýran hátt og þú metur stöðu vefsins í framhaldi.

Fáum stjórnendur í lið

Ef árangur á að nást í stafrænni umbreytingu þá er lykilatriði að fá stuðning stjórnenda. Fáðu mig á fund og ég hjálpa þér að tryggja stuðning við verkefnið.

Innri miðlun: Workvivo, Viva engage og Teams

Hvernig er staða á innri upplýsingamiðlun? Ertu bæði  með Workvio og Teams? Jafnvel líka innri vef? Ég hef langa reynslu af innri upplýsingamiðlun og hjá Hafnarfjarðarbæ hefur hún verið tekin i gegn á síðustu árum með Workplace og síðar Workvivo.

Námskeið, fyrirlestrar og þjálfun

Þjálfun / leiðsögn fyrir stafræna sérfræðinga

Með reynslu af vefstjórn síðan 1997 get ég miðlað talsverðu til óreyndari vefstjóra. Góð leið til að þróast í starfi er að geta leitað í reynslubrunn og haft aðgang að þjálfara (coaching).

Námskeið og fyrirlestrar

Þarftu að fá aukinn skilning á stafrænum umbreytingum? Vantar innblástur fyrir verkefnin framundan? Gott hnitmiðað erindi sniðið að þínum þörfum gæti hentað þér. Skoðaðu fyrirlestra sem ég hef haldið undanfarin ár. Ég get veitt fyrirtækjum innblástur með dæmisögum, aðgangi að reynslubrunni úr ólíkum verkefnum og miðla þekkingu minni.

Eigum við samleið?

Hringdu 664 5505 eða sendu línu á [email protected]

Uppfært 10. febrúar 2025